Starfsstöðvar
Ferðamálastofa er með starfsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri.
-Reykjavík: Geirsgata 9, 3. hæð -Sjá kort | -Akureyri: Hafnarstræti 91, 4. hæð -Sjá kort |
Græn leiga
Græn leiga hjá Reitum fasteignafélagi er viðbót við leigusamninga sem starfsstöð Ferðamálastofu á Akureyri tekur þátt í. Græn leiga er samstarf Reita og viðskiptavinar um að starfrækja húsnæði með vistvænum hætti. Í Grænu leigunni felst einföld aðferð til að auðvelda vistvænar breytingar og kynna þær.
Samstarf um græna leigu er ekki gert á fjárhagslegum forsendum. Tilgangurinn er að stuðla að sjálfbærari rekstri og viðhaldi bygginga auk þess að skapa heilnæmara umhverfi til handa starfsfólki.