Verkefni
Ferðamálastofa er ríkisstofnun sem heyrir undir yfirstjórn ráðherra. Stofnunin fer með stjórnsýslu ferðamála samkvæmt lögum um Ferðamálastofu.
Ráðherra skipar ferðamálastjóra til fimm ára í senn og veitir hann Ferðamálastofu forstöðu. Ferðamálastjóri ber ábyrgð á starfsemi og rekstri stofnunarinnar, mótar helstu áherslur, verkefni og starfshætti og annast daglega stjórn hennar.
Ferðamálastofa skal með starfsemi sinni fylgjast með og stuðla að þróun ferðaþjónustu sem mikilvægrar og sjálfbærrar grunnstoðar í íslensku samfélagi að teknu tilliti til þolmarka íslenskrar náttúru og samfélags ásamt því að vinna að samræmingu, greiningum og rannsóknum í ferðaþjónustu með hliðsjón af stefnu stjórnvalda.
Dagleg verkefni Ferðamálastofu snúa einkum að eftirfarandi þáttum:
Leyfisveitingar, eftirlit, umsagnir og stjórnsýsluerindi
- Leyfisveitingar til ferðaskrifstofa og ferðasala dagsferða
- Eftirlit með gerð öryggisáætlana
- Eftirlit með leyfisskyldri starfsemi
- Skráning upplýsingamiðstöðva
- Stjórnsýsluleg meðferð mála, umsagnir og álitsgerðir
Skipulags-, umhverfis-og öryggismál á ferðamannastöðum
- Umsýsla með styrkveitingum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða
- Þátttaka í mótun heildarsýnar og stefnu á landsvísu
- Umsagnir vegna fyrirhugaðra framkvæmda
- Öryggi á ferðamannastöðum
Vakinn – gæða og umhverfisvottun ferðaþjónustunnar
- Alhliða umsjón með rekstri Vakans
- Handleiðsla og stuðningur við fyrirtæki
- Hjálpargögn, fræðsluefni og gátlistar
- Öryggismál fyrirtækja
Svæðisbundin þróun
- Áfangastaðaáætlanir
- Stafræn þróun í ferðaþjónustu
- Stuðningur og samvinna við stoðstofnanir og landshlutasamtök
- Stefnumótun, skipulagning og áætlanagerð fyrir ferðaþjónustuna
Gögn og rannsóknir
- Fjöldi ferðamanna
- Væntingar ferðamanna, upplifun og ferðahegðun
- Landfræðileg gögn fyrir skipulags- og stefnumótunarvinnu
- Skipulag og framkvæmd rannsókna
- Miðlun upplýsinga og gagna
Almennt
- Eftirfylgni við og þátttaka í stefnumótun hins opinbera
- Þátttaka í stjórnum, nefndum og fagráðum
- Alþjóðlegt samstarf á sviði ferðamála